Sjá má uppfærða ráslista hér til vinstri. Dagskráin byrjar kl. 10 á B-flokk síðan A-flokk og endar á tölti. Úrslit strax á eftir hverri grein. Hey og vatn fyrir hrossin og veitingasala fyrir fólkið s.s. heitir drykkir, heitar samlokur, pylsur, kleinur, pönnukökur o.fl. Ekki posi á staðnum þannig að fólk þarf að hafa meðferðis einhverja aura. Ekki verður selt inn, en vönduð skrá verður til sölu á 1.000. kr. Salernisaðstaða verður á staðnum og einnig í Dalsmynni við Auðkúlurétt. Dagskránni verður útvarpað á svæðinu á FM 103,7.




